![]() |
TELEMATICS FLEET VIEW CEMOS CONNECT |
Upplýsingar um persónuvernd fyrir notendaþjónustu CLAAS og nettengdar vinnuvélar frá CLAAS |
(Útgáfa frá 29.04.2022) |
EfnisyfirlitA. Almennar upplýsingar um persónuverndB. Sérstakar upplýsingar um persónuvernd C. Uppruni upplýsinganna D. Skylda til að láta persónuupplýsingar þínar í té |
CLAAS Service and Parts GmbH, Mühlenwinkel 1, 33248 Harsewinkel, Þýskalandi (hér eftir nefnt „CLAAS Service and Parts“), sem ábyrgðaraðili að því er varðar persónuvernd, upplýsir þig hér með um vinnslu persónuupplýsinga þinna í tengslum við vinnslu upplýsinga eftir kaup á landbúnaðarvélum (t.d. dráttarvélum eða þreskivélum) og tengitækjum (sem hér eftir nefnast „landbúnaðarvélar“) að því er varðar eftirfarandi vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt lið B: I. Skjalfesting á ástandi vinnuvélarinnar þegar hún er afhent viðskiptavini og þjálfun viðskiptavinar í notkun hennar. II. Þjónustur fyrir nettengdar vinnuvélar (CLAAS Remote Service eða TELEMATICS, FLEET VIEW, CEMOS CONNECT). III. Notendaþjónusta (greiningarþjónusta (einkum greining og lagfæring bilana og búnaður sem notaður er í þeim tilgangi), aðgangur að hugbúnaðarútgáfum, úrvinnsla gjaldfrjálsrar þjónustu, ábyrgðarmála eða annarra beiðna um yfirtöku kostnaðar, rafræn skjöl fyrir vinnuvélina. IV. Vörueftirlit, vöruöryggi, frum- og framþróun á vörum og þjónustu, gæðastjórnun, vöruvernd. V. Greiningar til að bæta viðskiptaferli (einkum ferli við sölu og þjónustu), stuðningur við sölufyrirtæki á hverjum stað (t.d. í tengslum við beina markaðssetningu). VI. Upplýsingar sendar til að birta þær í CLAAS connect. VII. Auglýsingar, markaðssetning Hægt er að sækja ítarlega útgáfu persónuverndarupplýsinga fyrir notendaþjónustu CLAAS og nettengdar vinnuvélar frá CLAAS í nýjustu útgáfu á hverjum tíma á https:// privacy.claas.com/dpi/csp/customer/3002de eða https://www.claas-telematics.com/Telematics/res/ legal/Telematics_DPS.pdf. Auk þess er hvenær sem er hægt að fá þær sendar með pósti frá CLAAS Service and Parts án endurgjalds. Til þess nægir að senda óformleg skilaboð með samskiptaleiðinni sem kemur fram í lið A.I. Upplýsingar um persónuvernd https://privacy.claas.com/dpi/csp/customer/3002is PDF-skjal með upplýsingum um persónuverndhttps://www.claas_telematics.com/Telematics/res/legal/ Telematics_DPS.pdf |
A. Almennar upplýsingar um persónuvernd |
I. Hver er ábyrgðaraðili samkvæmt persónuverndarlögum? |
CLAAS Service and Parts GmbH Mühlenwinkel 1 33428 Harsewinkel Þýskalandi Sími +49 (0) 52 47 / 12-0 infoclaas@claas.com Senda má persónuverndarfulltrúanum bréf stíluð á „Datenschutzbeauftragter CLAAS Service and Parts GmbH, c/o CLAAS KGaA mbH, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi“ eða tölvupóst á netfangið group.dpo@claas.com. |
II. Samskiptaupplýsingar persónuverndarfulltrúa |
| Datenschutzbeauftragter CLAAS Service and Parts GmbH c/o CLAAS KGaA mbH Mühlenwinkel 1 33428 Harsewinkel, Þýskalandi group.dpo@claas.com |
III. Geymslutími |
CLAAS geymir persónuupplýsingar þínar eingöngu þar til tilganginum sem liggur til grundvallar skráningu og vinnslu þeirra er náð. Ef þörf krefur geymir CLAAS persónuupplýsingar þínar meðan á viðskiptasambandinu stendur. Þetta nær einkum yfir undirbúning og frágang samningsins. Auk þess geymir CLAAS persónuupplýsingar þínar að því marki sem og eins lengi og nauðsynlegt er til að efna samnings- og lagaskyldur. Þannig vinnum við úr persónuupplýsingum þínum til að uppfylla sönnunarog varðveisluskyldu samkvæmt verslunar- og skattarétti. Áætluð tímamörk fyrir geymslu eða skráningu eru sex ár vegna ákvæða verslunarréttar samkvæmt 257 gr. þýsku verslunarlögbókarinnar (HGB) og allt að tíu ár vegna skattareglna samkvæmt 147 gr. þýskra skattalaga (AO), svo fremi sem tíminn þarf ekki að vera lengri af skattatengdum ástæðum (t.d. vegna þess að endurskoðun er ólokið). Tímafresturinn hefst við lok almanaksársins þegar gögnin urðu til. Þegar persónuupplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar til að uppfylla samnings- eða lagaskyldur er þeim eytt með reglubundnum hætti, nema að þú hafir veitt CLAAS samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga þinna og/eða frekari vinnsla sé nauðsynleg vegna lögmætra hagsmuna CLAAS, t.d. til að fá viðskiptavini aftur í viðskipti eða til að verjast réttarkröfum þegar um lagalegan ágreining er að ræða. Að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga í því skyni að verjast réttarkröfum þegar um lagalegan ágreining er að ræða miðast geymslutíminn einnig við lögbundinn fyrningartíma. Samkvæmt 195 gr. o.áfr. í þýskum einkamálarétti (BGB) er fyrningartíminn allt að 30 ár, en reglubundinn fyrningartími er 3 ár frá lokum almanaksársins þegar krafan er lögð fram. Í þessu tilviki er vinnslan takmörkuð við þá lágmarksvinnslu sem fara þarf fram í þessu skyni og má ekki fara fram í öðrum tilgangi. Ofangreint á ekki við ef kveðið er á um annað í „Sérstakar upplýsingar um persónuvernd“. |
IV. Flokkar viðtakenda |
CLAAS Service and Parts miðlar persónuupplýsingum þínum til eftirfarandi þriðju aðila svo fremi sem lagaeða samningsákvæða heimila það eða þú hefur veitt samþykki þitt fyrir því. |
1. Þjónustuaðilar valdir af kostgæfni.
Þjónustuaðilar á okkar vegum, sem aðstoða okkur við að sinna viðskiptasambandinu, fá aðgang að persónuupplýsingunum. Um er að ræða fyrirtæki á sviði hýsingar, gagnastjórnunar, SaaS-þjónustu (e. „Software as a Service“), tölvupóstþjónustu, upplýsingatækniþjónustu (t.d. viðhalds og notendaþjónustu, yfirfærslu á gögnum), ráðgjafar, þjónustu í tengslum við fyrsta, annars og þriðja stigs notendaþjónustu, þjónustu símavera, umsjónar með viðskiptavinum, útgáfu, markaðssetningar, fjölmiðlatækni, fjarskipta, stjórnunar viðskiptatengsla og viðskiptatækifæra, rakningarþjónustu, vefsíðugerðar, reglufylgni, förgunarþjónustu (t.d. gagnaeyðingar), fyrirtæki sem annast greiningar fyrir okkur, þjónustuaðila á sviði fjármálastjórnunar, sendingar- og birgðastjórnunarþjónustu, prentþjónustu, tækniþjónustu (t.d. fyrir vélbúnað og fylgibúnað). Ef notaðir eru þjónustuaðilar í öðrum flokkum koma upplýsingar um það fram í sérstökum upplýsingum um persónuvernd í hverju tilviki fyrir sig. |
2. Miðlun til þriðju aðila.
a. Miðlun til opinberra aðila. Við miðlum persónuupplýsingum þínum jafnframt til þriðju aðila ef laga- eða samningsákvæði heimila það og/eða þú hefur veitt samþykki þitt fyrir því. Að þessu skilyrði uppfylltu kann persónuupplýsingunum að vera miðlað til eftirtalinna flokka viðtakenda: Opinberra aðila og stofnana (t.d. saksóknaraembættis, lögreglu, skattayfirvalda, eftirlitsyfirvalds á sviði persónuverndar) til að bregðast við beiðnum þessara aðila, svo fremi sem það er þér í hag eða okkur ber lagaleg skylda til þess. Lagagrundvöllur er f- eða cliður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. b. Miðlun í tengslum við kaup eða sölu fyrirtækja (t.d. kaup á eignum, e. „asset deals“). Í einstaka tilvikum miðlum við persónuupplýsingum þínum til (hugsanlegra) kaupenda í tengslum við sölu á fyrirtæki eða viðskiptasviðum (t.d. „asset deals“ með áreiðanleikakönnun). Miðlun persónuupplýsinga fer ekki fram fyrr en að uppfylltum skilyrðum persónuverndarlaga. Lagagrundvöllur er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar að því er varðar persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar til að tryggja áframhaldandi samningssamband milli kaupandans og þín. A-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er lagagrundvöllur fyrir miðlun persónuupplýsinga sem við biðjum um samþykki þitt fyrir (t.d. bankaupplýsinga; er þá unnið úr þeim persónuupplýsingum sem tilgreindar eru í samþykkinu). Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætir hagsmunir seljanda og kaupanda af miðlun persónuupplýsinganna felast í því að þjónusta viðskiptavini og fá þá aftur í viðskipti sem og beinni markaðssetningu. Lögmætir hagsmunir eru grundvöllur okkar fyrir miðlun (i) persónuupplýsinga sem eru ekki nauðsynlegar til þess að samningar gildi áfram en eru hins vegar nauðsynlegar til að þjónusta fyrirliggjandi viðskiptavini (t.d. persónulegar auðkenningarupplýsingar á borð við fornafn og eftirnafn, samskiptaupplýsingar tengiliða og rekstrarupplýsingar); (ii) upplýsinga af síðari stigum samningsgerðar milli viðskiptavinar og seljanda við kaupanda; (iii) upplýsinga um hugsanlega kaupendur og viðskiptavini; (iv) upplýsinga sem eru geymdar vegna lögbundinnar varðveisluskyldu; (v) upplýsinga vegna innheimtu ógreiddra krafna sem framseldar eru til kaupanda. Við miðlum bankaupplýsingum þínum aldrei nema með þínu samþykki. Vinnsla persónuupplýsinga í skilningi liðs A. IV. 2.b nær yfir eftirfarandi upplýsingar: rekstrarupplýsingar, samskiptaupplýsingar, tegund viðskiptavinar, persónulegar auðkenningarupplýsingar (t.d. fornafn og eftirnafn), upplýsingar um samning og verk, tæknilegar skráningarupplýsingar (t.d. tímastimplar), upplýsingar um vinnuvél, þjónustu- og viðhaldsupplýsingar, upplýsingar um og greiningar á áhugasviðum og notendahegðun viðskiptavina eða tengiliða. |
3. Miðlun persónuupplýsinga innan CLAASsamsteypunnar.Við miðlum persónuupplýsingum þínum til CLAASsölufyrirtækisins á þínu svæði, framleiðslufyrirtækja innan CLAAS-samsteypunnar, CLAAS-umboðsins þíns og CLAAS KGaA mbH vegna þjónustu við viðskiptavini, úrvinnslu pantana, efndar samninga á borð við Remote Service- eða CLAAS connectsamninginn þinn, endurbóta á vörum, vörueftirlits, endurbóta á sölu-, dreifingar- og þjónustuferlum, markaðsgreininga, vinnslu vegna réttinda skráðra einstaklinga samkvæmt persónuverndarlögum, beinnar markaðssetningar, uppfærslu á upplýsingum, umsjónar með grunnupplýsingum; Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætir hagsmunir fyrirtækja innan CLAAS-samsteypunnar felast í ofangreindum tilgangi. Svo fremi sem slíkt er nauðsynlegt til að koma á samningi að þínu frumkvæði eða til að efna samningsskyldur eða fer fram með þínu samþykki er lagagrundvöllur b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar eða a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Svo fremi sem við höfum lagalega heimild til þess er lagagrundvöllur samkvæmt c-lið 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að því er varðar frekari miðlun upplýsinga til þriðju aðila vísum við til sérstöku upplýsinganna um persónuvernd. |
4. Þriðju aðilar sem við eigum í viðskiptasambandi við.
(til dæmis CLAAS-umboðið þitt, innflutningsaðili CLAAS á þínu svæði, tækniþjónustuaðili (t.d. fyrir vélbúnað og fylgibúnað)) í þeim tilgangi að gera ráðstafanir í tengslum við vörueftirlit og endurbætur á vörum og að efna samning (t.d. Remote Servicesamninginn þinn); lögmætir hagsmunir ofangreindra þriðju aðila felast í ofangreindum tilgangi. Svo fremi sem slíkt er nauðsynlegt til að koma á samningi eða til að efna samningsskyldur eða fer fram með þínu samþykki er lagagrundvöllur b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar eða aliður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Svo fremi sem okkur ber lagaleg skylda til þess er lagagrundvöllur samkvæmt c-lið 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í nýtingu tækniþjónustu, vörueftirliti og endurbótum á vörum, gæðaeftirliti og framkvæmd lögboðinna útblástursmælinga, t.d. hjá vélaframleiðanda. |
V. Miðlun til þriðju landa |
Ef við miðlum persónuupplýsingum þínum sjálf eða í gegnum þjónustuaðila í ríkjum utan Evrópusambandsins uppfyllum við sérstakar kröfur 44. gr. o.áfr. í almennu persónuverndarreglugerðinni hvað þetta varðar og skyldum jafnframt þjónustuaðila okkar til að virða þessar reglur. Við munum því eingöngu miðla persónuupplýsingum þínum til landa utan Evrópusambandsins að því gefnu að fullnægjandi vernd sé tryggð í samræmi við almennu persónuverndarreglugerðina. Slík vernd er einkum tryggð með ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um hvort vernd teljist vera fullnægjandi eða með viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt 46. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Persónuupplýsingum er til dæmis miðlað til þriðju landa (ríkja utan Evrópusambandsins eða Evrópska efnahagssvæðisins) ef það er • nauðsynlegt til að efna samning sem þú ert aðili að eða til að bregðast við beiðni frá þér, • nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna okkar, • skylda samkvæmt lögum eða þú hefur veitt samþykki þitt fyrir því, • gert þegar notast er við þjónustuaðila samkvæmt vinnslusamningi. Ef ekki liggur fyrir ávörðun af hálfu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um hvort viðkomandi land teljist veita fullnægjandi vernd samkvæmt evrópskum persónuverndarreglum göngum við frá viðeigandi samningum til að tryggja fullnægjandi vernd fyrir réttindi þín og frelsi. Með slíkum samningum er tryggt að viðtakandi persónuupplýsinganna bjóði upp á fullnægjandi persónuvernd, einkum með því að gera staðlaða samninga samkvæmt kröfum Evrópusambandsins við viðtakanda upplýsinganna. Að öðrum kosti getum við einnig miðlað persónuupplýsingum á grundvelli yfirlýsts samþykkis frá þér. Þú getur afturkallað samþykki þitt hvenær sem er með framvirkum hætti, sbr. lið A.VII. Við sendum þér ítarlegri upplýsingar án endurgjalds ef þú sendir beiðni um það með ofangreindum samskiptaupplýsingum. Ef vinnsla persónuupplýsinga hjá viðtakendum sem bjóða ekki upp á fullnægjandi vernd byggist eingöngu á samþykki þínu vekjum við athygli á því að eftirfarandi hætta er fyrir hendi: Mögulega eru ekki fyrir hendi reglur til að vernda persónuupplýsingar þínar með fullnægjandi hætti, ekki er til staðar eftirlitsyfirvald á sviði persónuverndar, þér er gert erfitt fyrir við að nýta réttindi þín sem skráður einstaklingur eða þau eru hunsuð, ekkert eftirlit er með frekari vinnslu og miðlun persónuupplýsinganna til þriðju aðila. Frekari upplýsingar getur verið að finna í sérstöku upplýsingunum um persónuvernd. |
VI. Skylda til að láta persónuupplýsingar í té |
Svo fremi sem ekki er kveðið á um annað í sérstöku upplýsingunum um persónuvernd ber þér hvorki lagaskylda né samningsskylda til að láta persónuupplýsingar þínar í té. |
VII. Réttindi skráðra einstaklinga |
Samkvæmt 15. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar hefur þú rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar þínar eru skráðar. Ef unnið hefur verið með rangar persónuupplýsingar hefur þú samkvæmt 16. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar rétt á að þær séu leiðréttar. Ef lagaleg skilyrði eru fyrir hendi getur þú farið fram á að persónuupplýsingum þínum verði eytt eða vinnsla þeirra takmörkuð sem og andmælt vinnslu persónuupplýsinganna (17., 18. og 21. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Samkvæmt 20. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar getur þú nýtt rétt þinn til að flytja eigin gögn þegar um er að ræða persónuupplýsingar sem unnið er með á sjálfvirkan hátt á grundvelli samþykkis þíns eða samnings við þig. |
|
|
Þú getur nýtt rétt þinn gagnvart CLAAS með því að hafa samband eftir þeim leiðum sem tilgreindar eru í lið A.II., helst með því að senda tölvupóst á netfangið privacy@claas.com. Teljir þú að vinnsla persónuupplýsinga brjóti í bága við persónuverndarlög hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi á sviði persónuverndar að þínu vali (77. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Þú getur að sjálfsögðu einnig hvenær sem er lagt fram kvörtun hjá persónuverndarfulltrúa CLAAS (group.dpo@claas.com). Þegar þú nýtir rétt þinn sem skráður einstaklingur vegna persónuverndar vinnum við úr persónuupplýsingum þínum í því skyni að uppfylla lagalegar skyldur okkar samkvæmt c-lið 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar ásamt 15–22. gr., 3– 6 mgr. 12. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar sem og 3. mgr. 7. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þetta á meðal annars við um vinnslu persónuupplýsinga í því skyni að persónugreina skráðan einstakling með ótvíræðum hætti sem og það þegar óskað er eftir frekari upplýsingum til að staðfesta hver einstaklingurinn er. Við miðlum persónuupplýsingum skráðra einstaklinga áfram til viðtakenda upplýsinganna í skilningi 19. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar ef farið hefur verið fram á leiðréttingu upplýsinganna, eyðingu þeirra eða takmörkun á vinnslu (16. gr., 1. mgr. 17 gr.,18. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar) og að því marki sem slíkt er nauðsynlegt til þess að þú getir nýtt rétt þinn (c- og f-liður 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar) og til að senda þér sem skráðum einstaklingi tilkynningu (12. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Þetta gerum við á grundvelli lagaskyldu sem hvílir á okkur samkvæmt 6. mgr. 12. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. |
B. Sérstakar upplýsingar um persónuvernd |
I. Skjalfesting á ástandi vinnuvélarinnar þegar hún er afhent viðskiptavini og þjálfun viðskiptavinar í notkun hennar |
CLAAS Service and Parts vinnur með persónuupplýsingar þínar í því skyni að skjalfesta ástand landbúnaðarvélarinnar þegar hún er afhent þér samkvæmt afhendingarskoðun, skjalfesta þjálfun þína í meðhöndlun og viðhaldi á landbúnaðarvélinni sem og til að skjalfesta hvaða fylgiskjöl með landbúnaðarvélinni hafa verið afhent þér sem viðskiptavini og hvaða upplýsingaskjöl (t.d. EBsamræmisyfirlýsing, gerðarviðurkenning, notendahandbækur, þjónustubók) hafa verið látin í té. Eftirfarandi upplýsingar eru skráðar í ofangreindum tilgangi: rekstrarupplýsingar, persónulegar auðkenningarupplýsingar, samskiptaupplýsingar, vélarupplýsingar, tæknilegar og faglegar skráningarupplýsingar. Um er að ræða upplýsingar sem söluaðili CLAAS skráir og miðlar áfram til CLAAS Service and Parts og miðlar áfram til sölufyrirtækis CLAAS eða innflutningsaðila CLAAS á þínu svæði í ofangreindum tilgangi. Þessir aðilar nota upplýsingar þínar í þeim tilgangi að setja fram lagakröfur, í varnarskyni þegar um lagalegan ágreining er að ræða sem og til að uppfylla lagaskyldur sem hvíla á þeim í tengslum við vörueftirlit og vöruöryggi og ber hver aðili fyrir sig þá aðskilda ábyrgð. Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í ofangreindum tilgangi. Að því marki sem vinnsla persónuupplýsinga er nauðsynleg til að uppfylla lagaskyldur í tengslum við vörueftirlit og vöruöryggi er lagagrundvöllurinn c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. |
II. Þjónustur fyrir nettengdar vinnuvélar |
1. Veiting þjónustunnar CLAAS Remote Service eða TELEMATICS, FLEET VIEW |
a. Umfang vinnslu persónuupplýsinga við veitingu þjónustunnar CLAAS Remote Service eða TELEMATICS, FLEET VIEW CLAAS Service and Parts býður upp á vöruna CLAAS Remote Service, TELEMATICS og FLEET VIEW. Ef þú notar slíkar vörur fyrir landbúnaðarvélarnar þínar gefur þú upp persónulegar auðkenningarupplýsingar (t.d. fornafn og eftirnafn), samskiptaupplýsingar (t.d. símanúmer og netfang) og rekstrarupplýsingar (t.d. nafn fyrirtækisins) og auðkenni vinnuvélarinnar (t.d. vélarnúmer) þegar gengið er frá samningi um leyfi fyrir vinnuvélarnar. Auk þess er unnið með samnings- og verkupplýsingar þínar (t.d. leyfiskóða, gildistíma samnings) og auðkenni vinnuvélarinnar (t.d. vélarnúmer, tækisnúmer) vegna leyfa fyrir vinnuvélarnar. Landbúnaðarvélarnar sem samningurinn um CLAAS Remote Service, TELEMATICS eða FLEET VIEW tekur til senda eftirfarandi upplýsingar (sem saman nefnast „gagnamengið“) vegna samningsefnda og er þá einkum um að ræða eftirfarandi upplýsingar, allt eftir landbúnaðarvélinni hverju sinni: • grunnupplýsingar og auðkenni vinnuvélar (einkum framleiðandi, gerð, tegund vinnuvélar, vélarnúmer), • rekstrarupplýsingar vinnuvélar, þ.e. upplýsingar varðandi rekstrarstöðu vinnuvélarinnar (einkum vinnslustaða, stöður kerfishluta á borð við truflanir og bilanir, hugbúnaðarstaða, kennitölur skynjara), • afkastatölur vinnuvélar, þ.e. upplýsingar um afköst vinnuvélarinnar (einkum eldsneytisnotkun, snúningshraða vélar, hraða), • upplýsingar um hreyfingar vinnuvélar (einkum um stöðu, stefnu, ekna vegalengd og aksturshraða), • þjónustu- og viðhaldsupplýsingar (einkum um slit á hlutum og íhlutum, greiningarupplýsingar), • upplýsingar um umhverfi vinnuvélarinnar (einkum um hitastig umhverfis, raka í uppskeru, gæði korns, tegund ávaxtar) • notkunar- og flutningsupplýsingar (t.d. um stöðu SIM-korts, stöðu tengingar), • tæknilegar skráningarupplýsingar (t.d. tímastimplar). |
b. Nánari upplýsingar um þjónustuna CLAAS Remote Service CLAAS Service and Parts sendir gagnamengið einnig áfram til aðila í þjónustuneti CLAAS til að uppfylla CLAAS Remote Service-samninginn. Allt eftir markaðssvæði getur hér verið um að ræða CLAASþjónustuaðilann þinn, viðkomandi sölufyrirtæki CLAAS eða innflutningsaðila CLAAS og CLAAS Service and Parts (sem hér eftir nefnast í sameiningu „þjónustunet CLAAS“). Við notum persónuupplýsingar þínar jafnframt til að veita þér upplýsingar um leyfi sem eru að renna út. |
c. Nánari upplýsingar um þjónustuna CLAAS TELEMATICS, FLEET VIEW Ef þú notar CLAAS TELEMATICS eða FLEET VIEW þarf einnig að ganga frá skráningu með notandareikningi í þar til ætlaðri vefgátt. Gengið frá skráningu, innskráning. Til að ganga frá skráningu þarf að færa inn raðnúmer vinnuvélarinnar og virkjunarkóðann fyrir vinnuvélina, velja notandanafn, færa inn netfang og ljúka síðan við skráninguna með því að gefa upp fornafn og eftirnafn þitt, heiti fyrirtækisins, símanúmer og póstfang. Ef nota á þjónustuna CLAAS FLEET VIEW þarf bæði að ganga frá skráningunni sem hér var lýst og skrá fartækið með aðgangsupplýsingunum og leyfislyklinum sem þú fékkst þegar þú laukst við skráninguna. Þegar þú skráir þig inn vinnum við úr notandanafni þínu og lykilorði (með dulritun). Gagnaflutningur til CLAAS-þjónustuaðila vegna þjónustu, virkjun á CLAAS Remote Service. Í skráningarferlinu getur þú einnig valið hvort söluaðili CLAAS að þínu vali eigi að fá aðgang að tækniupplýsingunum sem sendar eru með CLAAS TELEMATICS eða hvort virkja eigi þjónustuna „Remote Service“. Ef þú veitir samþykki þitt fyrir sendingu TELEMATICS-upplýsinga þinna til CLAASsöluaðilans er samþykkið grundvöllurinn fyrir gagnaflutningnum til hans. Gagnaflutningur til samstarfsaðila. Í tengslum við samningsefndir fyrir CLAAS TELEMATICS getur þú einnig átt frumkvæði að sendingu gagna til aðila sem bjóða upp á þriðju kerfi (t.d. aðila sem bjóða upp á bústjórnarkerfi, Data Connect-samstarfsaðila) (sem hér eftir nefnast: "samstarfsaðilar“). Í þessu tilviki sendir CLAAS Service and Parts hluta gagnamengisins samkvæmt B.II.1.a áfram til þeirra sem bjóða upp á þriðju kerfin. Miðlun upplýsinga til notenda með heimild. Þú getur valið að veita öðrum notendum aðgang að upplýsingunum á CLAAS TELEMATICS-reikningnum þínum og úthlutað þeim tilteknum hlutverkum. Í þessu tilviki sendum við upplýsingarnar samkvæmt lið B.II. 1.a. til notenda sem þú býður í þessum tilgangi. Eiginleikinn Combine League. Með eiginleikanum Combine League eru upplýsingarnar úr gagnamenginu sem landbúnaðarvélin þín sendir í tengslum við þjónustuna TELEMATICS samkvæmt lið B.II.1. birtar öðrum notendum á nafnlausu sniði auk þess sem þér eru birtar upplýsingar frá öðrum viðskiptavinum á nafnlausu sniði til þess að gera þér kleift að bera afköst landbúnaðarvélarinnar þinnar saman við afköst landbúnaðarvéla annarra viðskiptavina. Upplýsingar um leyfi sem eru að renna út. Við notum persónuupplýsingar þínar jafnframt til að veita þér upplýsingar um leyfi sem eru að renna út. |
d. Á hvaða lagagrundvelli fer vinnsla okkar á persónuupplýsingum þínum fram? Að því er varðar skráningu og lestur upplýsinga samkvæmt lið B.II.1.a.-c. með fjarskiptabúnaðinum á vinnuvélinni er lagagrundvöllur 2. tl. 2. mgr. 25. gr.þýskra laga um persónuvernd í fjarskiptum og fjölmiðlum (þ. Telekommunikations-Telemedien- Datenschutzgesetz, hér eftir nefnt: „TTDSG“) og að því er varðar frekari vinnslu persónuupplýsinga til að uppfylla samning um veitingu þjónustu er lagagrundvöllur b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við skráningu og innskráningu og virkjun CLAAS Remote Service er lagagrundvöllur b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar (samningsgerð og samningsefndir). Svo fremi sem við óskum eftir samþykki þínu fyrir miðlun upplýsinga er lagagrundvöllur jafnframt a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að því er varðar upplýsingar um hvenær leyfi renna út er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að veita viðskiptavinum okkar upplýsingar til að koma í veg fyrir að þeir missi aðgang að rekstrartengdum eiginleikum. Að uppfylltum skilyrðum persónuverndarlaga felast lögmætu hagsmunirnir einnig í beinni markaðssetningu. Ef þú veitir CLAAS-þjónustuaðila aðgang að þessum upplýsingum á TELEMATICSreikningnum þínum vegna viðhalds og viðgerða er lagagrundvöllur a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. F-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem CLAASþjónustuaðilar senda áfram til CLAAS Service and Parts eða þjónustunets CLAAS á þínum stað í því skyni að fá tækniaðstoð við greiningu og lagfæringu bilana sem og vegna endurbóta á vörum og vörueftirlits. Lögmætu hagsmunirnir felast í ofangreindum tilgangi. |
e. Er upplýsingum miðlað til þriðja lands? Ef aðilar í viðkomandi þjónustuneti CLAAS eða samstarfsaðili eða þriðji notandi sem þú veitir heimild eru staðsettir í þriðja landi utan Evrópusambandsins eða Evrópska efnahagssvæðisins miðlum við persónuupplýsingum þínum áfram til viðtakanda í þriðja landi. Við höfum gert viðeigandi verndarráðstafanir til að tryggja að persónuupplýsingar þínar njóti verndar samkvæmt kröfum persónuverndarlaga, sbr. lið A.V., þrátt fyrir að þeim sé miðlað til þriðja lands. |
f. Vefsíða CLAAS TELEMATICS (www.claastelematics. com) (1) Aðgangur almennings að vefsíðu okkar Þegar þú opnar vefsvæðið í vafra eru vafrakökur vistaðar í tölvunni þinni meðan á notkun vefsvæðisins stendur. Vafrakökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á harða diski tölvunnar þar sem þær eru tengdar vafranum sem er notaður og miðla tilteknum upplýsingum til aðilans sem lét vista þær (CLAAS eða þriðja aðila). Ef vefsvæði okkar er eingöngu notað til að leita upplýsinga, þ.e. ef þú skráir þig ekki eða veitir CLAAS upplýsingar á annan hátt (t.d. með samskiptaeyðublaði okkar), safnar CLAAS eingöngu þeim persónuupplýsingum sem vafrinn þinn sendir til netþjóns okkar. Gagnasöfnunin er tæknilega nauðsynleg til þess að hægt sé að birta þér vefsvæðið. Lagagrundvöllur er f- og b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Vistun í annálsskrám (einnig í lengri tíma en sem nemur heimsókn þinni á vefsvæðið) er nauðsynleg til að tryggja rétta virkni vefsvæðisins og öryggi upplýsingatæknikerfa. Þú getur hvenær sem er andmælt vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum með framvirkum hætti, sbr. lið A.VII. Lögmætir hagsmunir okkar af vinnslu persónuupplýsinga felast einnig í ofangreindum tilgangi. Við heimsókn á vefsvæðið eru skráðar upplýsingar í eftirfarandi flokkum: notkunar- og flutningsupplýsingar, tæknilegar skráningarupplýsingar, t.d. • dagsetning og tími heimsóknar • mismunur milli tímabeltis og Greenwich Mean Time (GMT) • IP-tala • hýsisnafn tölvunnar sem notuð er til að heimsækja vefsvæðið • vefsvæðið sem komið var á vefsvæðið frá • vefsvæði sem farið er á af vefsvæðinu (efni beiðninnar) • síður sem skoðaðar eru á vefsvæðinu • tilkynning um hvort birting vefsvæðis fór rétt fram • sent gagnamagn • upplýsingar um gerð vafra, tungumál og útgáfu sem var notuð • stýrikerfi Vefsvæðið er hýst hjá þriðja aðila (vefhýsingaraðila). Hýsingaraðilinn tekur við ofangreindum upplýsingum sem vinnsluaðili. Upplýsingunum er eytt um leið og ekki er lengur þörf á þeim í þeim tilgangi sem liggur að baki söfnun þeirra. Við birtingu vefsvæðisins á þetta við þegar setunni hverju sinni lýkur. Þegar um er að ræða vistun upplýsinga í annálsskrám á þetta við í síðasta lagi að 30 dögum liðnum. Upplýsingarnar eru ekki vistaðar ásamt öðrum persónuupplýsingum frá þér. (2) Notkun þjónustu (t.d. á vafrakökum, greiningarog „remarketing“-tólum) CLAAS Service and Parts notar mismunandi þjónustur á þessu vefsvæði (t.d. vafrakökur, greiningar og „remarketing“-tól). Með hjálp þessarar þjónustu vistar CLAAS upplýsingar í tækinu þínu (t.d. í vafranum) og/eða nálgast upplýsingar sem eru þegar vistaðar í tækinu. Þessar upplýsingar geta ýmist verið persónutengdar eða ópersónutengdar. Í kjölfar vistunar eða aðgengis að upplýsingum getur e.t.v. farið fram frekari vinnsla persónuupplýsinga í samræmi við val þitt á flokki. CLAAS notar eftirfarandi þjónustu í eftirfarandi flokkum: https://www.claas-telematics.com/Telematics/cookieinfo.app https://www.claastelematics. com/Telematics/cookieinfo.app Ef notkun þjónustunnar (þ.e. vistun upplýsinga í tækinu þínu og/eða aðgengi að upplýsingum sem eru vistaðar í tækinu þínu) er tæknilega nauðsynleg er lagagrundvöllurinn 2. mgr. 25. gr.TTDSG ásamt b-, cog f-lið 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þessar upplýsingar geta ýmist verið persónutengdar eða ópersónutengdar. Ef vinnsla persónuupplýsinga sem varða þig fer fram í kjölfar vistunar eða aðgengis að upplýsingum vinnum við með þær svo fremi sem það • er nauðsynlegt til að efna samning sem þú ert aðili að (b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar) eða • kveðið er á um það í lögum (c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar) • er nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna okkar (f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Þú getur hvenær sem er andmælt vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum með framvirkum hætti, sbr. lið A.VII. Þú getur eytt vafrakökum í stillingum vafrans. Lagagrundvöllur fyrir notkun þjónustunnar (þ.e. vistun upplýsinga í tækinu þínu og/eða aðgengi að upplýsingum sem eru vistaðar í tækinu þínu) í flokkunum tölfræðigreining, markaðssetning og viðbótareiginleikar er 1. málsl. 1. mgr. 25. gr.TTDSG ásamt a-lið 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar á grundvelli samþykkis þíns. Þessar upplýsingar geta ýmist verið persónutengdar eða ópersónutengdar. Ef vinnsla persónuupplýsinga sem varða þig, í samræmi við val þitt á flokki, fer fram í kjölfar vistunar eða aðgengis að upplýsingum vinnum við með þær á grundvelli a-liðar 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar á grundvelli samþykkis þíns. Þú átt rétt á að draga samþykki þitt til baka, sbr. lið A.VII. Afturköllun samþykkis skal ekki hafa áhrif á lögmæti vistunar upplýsinga í tækinu þínu og/eða aðgangs að upplýsingum í tækinu sem og síðari vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt vali þínu á flokki sem fer fram á grundvelli samþykkisins. Samþykki þitt er valfrjálst. Með „Breyta persónuverndarstillingum“ getur þú dregið samþykki þitt til baka eða gert breytingar á persónuverndarstillingum þínum: https://www.claas-telematics.com/Telematics/cookieinfo.app https://www.claastelematics.com/Telematics/cookieinfo.app Samþykki þitt gildir í sex mánuði. Að þeim tíma liðnum óskum við aftur eftir samþykki þínu. Við óskum einnig aftur eftir samþykki þínu með því að birta vafrakökuborða þegar ný þjónusta bætist við á vefsvæðinu eða þegar slíkar breytingar verða á þjónustunni að við þurfum aftur að fá samþykki til þess að geta haldið áfram að nota þjónustuna (t.d. þegar breytingar verða á tilgangi). Athugaðu að vafrastillingar þínar geta haft í för með sér að ekki sé hægt að vista stillingarnar þínar (t.d. samþykki þitt) í lengri tíma og að við þurfum því að biðja um samþykki þitt í hvert sinn sem þú kemur á síðuna okkar. |
g. Smáforrit fyrir CLAAS TELEMATICS, FLEET VIEW Ef smáforritið er eingöngu notað til að leita upplýsinga, þ.e. ef þú skráir þig ekki eða veitir CLAAS Service and Parts upplýsingar á annan hátt (t.d. með samskiptaeyðublaði okkar), safnar CLAAS Service and Parts eingöngu þeim persónuupplýsingum sem vafrinn þinn sendir til netþjóns okkar. Gagnasöfnunin er tæknilega nauðsynleg til þess að hægt sé að birta þér vefsvæðið. Lagagrundvöllur er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Vistun í annálsskrám í lengri tíma en sem nemur heimsókn þinni á vefsvæðið er nauðsynleg til að tryggja rétta virkni vefsvæðisins og öryggi upplýsingatæknikerfa. Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga er fliður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þú getur hvenær sem er andmælt vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum með framvirkum hætti, sbr. lið A.VII. Lögmætir hagsmunir okkar af vinnslu persónuupplýsinga felast einnig í ofangreindum tilgangi. Ef þú notar CLAAS TELEMATICS, CLAAS FLEET VIEW eða CLAAS CEMOS CONNECT (fyrir CEMOS CONNECT sjá lið B.II.2.) með farsímaforriti eru eftirfarandi upplýsingar sendar sjálfkrafa til CLAAS Service and Parts: • IP-tala • dagsetning og tími fyrirspurnar • aðgangsstaða / HTTP-stöðukóði • staðsetningarupplýsingar • sent gagnamagn Upplýsingunum er eytt um leið og ekki er lengur þörf á þeim í þeim tilgangi sem liggur að baki söfnun þeirra. Við birtingu vefsvæðisins á þetta við þegar setunni hverju sinni lýkur. Þegar um er að ræða vistun upplýsinga í annálsskrám á þetta við í síðasta lagi að 30 dögum liðnum. Upplýsingarnar eru ekki vistaðar ásamt öðrum persónuupplýsingum frá þér. |
h. Notkun þjónustu (t.d. á vafrakökum, greiningarog „remarketing“-tólum) fyrir CLAAS TELEMATICS-smáforritið, FLEET VIEW-smáforritið Ef svo ólíklega vill til að við notkun þína á farsímaforritunum komi upp alvarlegt vandamál sem kemur í veg fyrir að hægt sé að nota forritin í einhvern tíma eru samkvæmt forstillingum alltaf sendar tilteknar upplýsingar með svokallaðri hrunskýrslu til CLAAS Service and Parts. Hrunskýrslan hefur að geyma upplýsingar um eiginleika sem var notaður og ítarlegar upplýsingar um villuboðin, tíma notkunar á farsímaforriti, stýrikerfi fartækisins, vélbúnað tækis, farsímafyrirtækið og útgáfu farsímaforritsins sem er notuð. CLAAS Service and Parts hefur hagsmuni af því að finna út hvað olli villunni og – ef orsökin er á ábyrgð fyrirtækisins – gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að sambærilegar villur komi upp í framtíðinni og tryggja þannig að upplifun notenda verði eins snurðulaus og kostur er. Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þú getur hvenær sem er andmælt vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum með framvirkum hætti, sbr. lið A.VII. Þú getur einnig valið hvernig hrunskýrslur eru sendar í stillingum farsímaforritanna. |
2. Veiting þjónustunnar CEMOS CONNECT |
Ef þú notar þjónustuna CLAAS CEMOS CONNECT getur þú skráð landbúnaðarvélina sem þú keyptir CLAAS CEMOS CONNECT-leyfið fyrir með CLAAS TELEMATICS-reikningnum þínum. Við vinnum þá úr númeri CEMOS CONNECT-leyfisins sem og þeim upplýsingum sem á þarf að halda fyrir skráninguna. Það eru rekstrarupplýsingar þínar (t.d. heiti fyrirtækisins, póstfang), samskiptaupplýsingar (t.d. netfang, símanúmer), persónulegar auðkenningarupplýsingar (t.d. fornafn og eftirnafn, notandanafn) sem og leyfisnúmer og vélarupplýsingar (t.d. grunnupplýsingar á borð við númer vinnuvélarinnar). Fyrir skráða notendur vinnum við úr upplýsingum fyrir innskráningu í CLAAS TELEMATICS-reikninginn. Það eru notandanafn þitt og lykilorð. Í farsímaforritinu fyrir CLAAS TELEMATICS (hér eftir nefnt „smáforrit“) getur þú skipað vinnuvélum með CLAAS CEMOS CONNECT-leyfi í einn eða fleiri hópa (flota) að eigin vali og úthlutað hverri vinnuvél í flota hlutverki sendanda eða viðtakanda og breytt stillingum eða tekið yfir stillingar fyrir flotann frá sendanda. Ef þú notar CEMOS CONNECT vinnum við úr samnings- og verkupplýsingum (t.d. leyfiskóða), vélarupplýsingum (t.d. grunnupplýsingum á borð við númer vinnuvélarinnar sem þú skráðir og heiti véla sem þú gefur þeim, heiti flota sem þú velur), rekstrarupplýsingum vinnuvélar á borð við valdar stillingar, upplýsingar um hreyfingar vinnuvélar, stillingar vinnuvélarinnar sem og tæknilegum skráningarupplýsingum (t.d. annálsskrám). Ofangreindar upplýsingar eru nauðsynlegar til að efna samninginn sem gerður var við þig. Lagagrundvöllur fyrir vinnslunni er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. CLAAS Service and Parts notar hluta upplýsinganna sem tengjast notkun CLAAS CEMOS CONNECT í viðhalds- og viðgerðaskyni og miðlar þeim einnig áfram til þjónustunets CLAAS í þessum tilgangi. Til þjónustunets CLAAS teljast sölu- eða þjónustuaðili CLAAS sem viðskiptavinurinn velur (hér eftir nefndur þjónustuaðili) sem og viðkomandi sölufyrirtæki CLAAS (www.claas-gruppe.com > The Group > Locations) eða viðkomandi innflutningsaðili CLAAS (www.claas.com > CLAAS global) og CLAAS Service and Parts. Þetta eru notkunar- og flutningsupplýsingar (t.d. tengingarstaða CLAAS CEMOS CONNECT-leyfisins, leyfisstaða, síðasta stöðutilkynning vinnuvélarinnar með CLAAS CEMOS CONNECT), tæknilegar skráningarupplýsingar (t.d. tímastimpill síðustu tengingar), vélarupplýsingar (t.d. rekstrarupplýsingar vinnuvélar á borð við valdar hópastillingar og aðgerðir), stillingar vinnuvélarinnar. Lagagrundvöllur fyrir miðlun til þjónustunets CLAAS er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. CLAAS Service and Parts vinnur jafnframt með persónuupplýsingar þínar í viðhalds- og viðgerðaskyni. Ef ekki er lengur þörf á þessum upplýsingum innan 4 vikna frá því þær voru skráðar í viðhalds- og viðgerðaskyni er þeim eytt. Hópurinn/ hóparnir sem þú stofnar í smáforritinu er(u) í boði í eitt ár. |
3. Framboð á tengimöguleikum fyrir kerfi frá þriðja aðila |
Þegar notuð er landbúnaðarvél með útbúnaði sem hægt er að nota til að tengja kerfi frá þriðju aðilum (t.d. stýringarkerfi) getur vinnuvélin skipst á upplýsingum við þessar þjónustur þriðju aðila ef tengingu er komið á með viðeigandi hætti. Fyrirtæki innan CLAASsamsteypunnar fá alla jafna ekki aðgang að þessum upplýsingum og bera því samkvæmt persónuverndarlögum ekki ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram hjá þessum þriðju aðilum. Sjá persónuverndarstefnur þriðju aðilanna hvað þetta varðar. |
III. Notendaþjónusta |
1. Greiningarþjónusta (einkum greining og lagfæring bilana og búnaður sem notaður er í þeim tilgangi), aðgangur að hugbúnaðarútgáfum, vöruvernd |
CLAAS Service and Parts vinnur með persónuupplýsingar þínar í tengslum við veitingu tækniaðstoðar til CLAAS-þjónustuaðilans þíns eða sölufyrirtækis CLAAS eða innflutningsaðila CLAAS á staðnum í þeim tilgangi að greina og lagfæra bilanir sem og til að bjóða upp á hugbúnað til að tryggja að vinnuvélin virki rétt. Til þess vinnur CLAAS Service and Parts með persónuupplýsingar sem CLAAS Service and Parts fær frá CLAAS-þjónustuaðila eða sölufyrirtæki CLAAS / innflutningsaðila CLAAS (CLAAS Service and Parts, viðkomandi sölufyrirtæki CLAAS / innflutningsaðili CLAAS og CLAAS-þjónustuaðilinn nefnast hér eftir í sameiningu „þjónustunet CLAAS“) í þessum tilgangi eða safnar hjá þér í tengslum við notkun greiningarverkfæra (vél- og hugbúnaðar) og efndir á Remote Service-samningnum, sjá lið B.II.. Upplýsingarnar sem aðilar í þjónustuneti CLAAS lesa úr vinnuvélinni með greiningarverkfærum eru grunnupplýsingar vinnuvélar (t.d. vöruflokkur, vörutegund, vélarnúmer, raðnúmer stjórntölva), auðkenni vinnuvélar (t.d. verksmiðjunúmer), rekstrarupplýsingar vinnuvélar (t.d. vinnslustaða vinnuvélar og kerfisíhluta, valdar stillingar, hugbúnaðarstaða, villukóðar), afkastatölur vinnuvélar (t.d. snúningshraði vélar, hektarar sem búið er að uppskera á, baggar sem búið er að vinna), tæknilegar skráningarupplýsingar (t.d. tímastimplar), stillingar vinnuvélar, upplýsingar um umhverfi vinnuvélarinnar (t.d. veðurskilyrði, tegund ávaxtar), notkunar- og flutningsupplýsingar (t.d. staða tengingar, sent gagnamagn), þjónustu- og viðhaldsupplýsingar (t.d. um þjónustuskoðanir). Hér er einnig um að ræða upplýsingar sem eru annars ekki fyrir hendi nema í stuttan tíma. Auk þess eru notaðar faglegar skráningarupplýsingar (t.d. endurgjöf í tengslum við þjónustusamtöl) til að veita greiningarþjónustu sem og upplýsingar sem verða til hjá þjónustuneti CLAAS við gagnagreiningu (t.d. „big data“-greiningu úr samsetningu upplýsinganna sem tilgreindar eru í lið B.III.1). CLAAS Service and Parts vistar þessar upplýsingar síðan í kerfum sínum til þess að geta veitt aðilum í þjónustuneti CLAAS betri ráðleggingar í tengslum við veitingu greiningarþjónustu og vegna skýrslugerðar, vörueftirlits og endurbóta á vörum. Ef miðla verður upplýsingum til viðkomandi framleiðslufyrirtækis CLAAS eða í undantekningartilvikum til framleiðanda íhlutar til að geta þegið tækniaðstoð (t.d. fjórða stigs aðstoð) sendir CLAAS Service and Parts nauðsynlegar upplýsingar áfram til viðkomandi aðila. Aðilar í þjónustuneti CLAAS, framleiðslufyrirtæki CLAAS eða framleiðandi íhlutar vinna úr persónuupplýsingum þínum með aðskilinni ábyrgð þegar þeir nota þessi greiningarkerfi. Vinnuvélar með CLAAS CEBIS/CEMOS. Ef þú ert með vinnuvél með CLAAS CEBIS eða CEMOSútbúnaði getur aðili í þjónustuneti CLAAS lesið hluta fyrrnefndra upplýsinga (framangreindar upplýsingar að undanskildum þjónustu- og viðhaldsupplýsingum sem og upplýsingum um umhverfi vélarinnar) úr vélinni með nákvæmari hætti (t.d. með minniskorti). Um er að ræða upplýsingar sem aðilar í þjónustuneti CLAAS hafa annars ekki aðgang að, nema að aðilinn í þjónustuneti CLAAS lesi úr þeim í því skyni að veita greiningarþjónustu (greiningu og lagfæringu bilana, sbr. lið B.III.1.) og miðli þeim áfram innan fyrirtækisins til að veita greiningarþjónustu. Aðilinn í þjónustuneti CLAAS getur sett upp hugbúnaðarútgáfur á stjórntölvum ýmist á verkstæðinu eða í gegnum fjartengingu og séð þannig til þess að vinnuvélin virki rétt og netöryggi sé tryggt. Í þessum tilgangi safnar aðilinn í þjónustuneti CLAAS grunnupplýsingum vinnuvélar (t.d. vöruflokki, vörutegund, vélarnúmeri, raðnúmeri stjórntölva), auðkennum vinnuvélar (t.d. verksmiðjunúmeri), rekstrarupplýsingum vinnuvélar (t.d. vinnslustöðu vinnuvélar og kerfisíhluta, hugbúnaðarstöðu, villukóðum), tæknilegum skráningarupplýsingum (t.d. tímastimplum), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum (t.d. um þjónustuskoðanir). Lagagrundvöllur er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar að því er varðar efndir á samningsskyldum eða gerð samnings að þinni beiðni. Að því marki sem CLAAS Service and Parts, framleiðslufyrirtæki CLAAS eða sölufyrirtæki/innflutningsaðili CLAAS aðstoðar söluaðila innan marka þeirrar samningsbundnu skyldu sem á honum hvílir við að veita þjónustu vinna fyrirtækin með upplýsingarnar sem vinnsluaðilar. Cliður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er lagagrundvöllur að því er varðar að uppfylla lagaskyldur í tengslum við vöruöryggi sem og f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar að því er varðar síðari vistun og vinnslu upplýsinga í greiningarskyni. Lögmætu hagsmunirnir felast í bættri greiningu og lagfæringu bilana og betri ráðleggingum sem þessu tengjast til aðila í þjónustuneti CLAAS. Vinnsla CLAAS Service and Parts á persónuupplýsingunum samkvæmt þessum lið B.III.1. fer einnig fram vegna vöruverndar, til að koma í veg fyrir svik og til að halda uppi vörnum í öðrum málum fyrir dómstólum eða utan dómstóla, ef þú eða þriðji aðili leggur fram kröfu gegn CLAAS Service and Parts eða fyrirtæki í CLAAS-samsteypunni vegna ágalla á vörum eða þjónustu okkar, og miðlar þeim einnig áfram í þessum tilgangi til annarra fyrirtækja innan CLAAS-samsteypunnar ef á þarf að halda. Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í ofangreindum tilgangi. Svo fremi sem okkur ber lagaleg skylda til að vinna með persónuupplýsingarnar er lagagrundvöllur fyrir vinnslunni c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Ef þú eða aðili í þjónustuneti CLAAS eða framleiðslufyrirtækið eruð í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. |
2. Úrvinnsla gjaldfrjálsrar þjónustu, ábyrgðarmála eða annarra beiðna um yfirtöku kostnaðar |
| CLAAS Service and Parts vinnur einnig með persónuupplýsingar þínar í tengslum við úrvinnslu gjaldfrjálsrar þjónustu, ábyrgðarmála eða annarra beiðna um yfirtöku kostnaðar (skoðun, veitingu heimildar, úrvinnslu) og kann í þessum tilgangi einnig að miðla þeim áfram til annarra aðila í þjónustuneti CLAAS og e.t.v. til viðkomandi framleiðslufyrirtækis CLAAS. Þessir aðilar vinna þá úr auðkenni vinnuvélarinnar (t.d. vélarnúmeri), grunnupplýsingum vinnuvélar (t.d. framleiðanda, vörutegund, vöruflokki), rekstrarupplýsingum vinnuvélar (t.d. vinnslustöðu vara og kerfisíhluta), afkastatölum vinnuvélar (t.d. eldsneytisnotkun, snúningshraða vélar), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum (t.d. villulýsingu, þjónustu- og viðhaldsferli) sem og samnings- og verkupplýsingum (t.d. gildistíma samnings, hámarksfjölda vinnustunda við lok gildistíma samnings). Ef CLAAS Service and Parts er samningsaðili vinnur CLAAS Service and Parts jafnframt úr rekstrarupplýsingum þínum (t.d. heiti fyrirtækis og póstfangi), persónulegum auðkenningarupplýsingum (t.d. fornafni og eftirnafni tengiliða), samskiptaupplýsingum (t.d. símanúmeri, netfangi tengiliða), en að öðru leyti fer vinnsla persónuupplýsinga af hálfu CLAAS Service and Parts fram með gerviauðkenni eða með ópersónugreinanlegum hætti. Svo fremi sem vinnsla persónuupplýsinga er nauðsynleg til að efna samning sem gerður hefur verið við þig (eða gera við þig samning að þinni beiðni) er lagagrundvöllur fyrir vinnslunni b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að veita tækniaðstoð innan þjónustunets CLAAS, hagsmunum okkar af því að bjóða viðskiptavinum upp á sem besta þjónustu sem og því að vinna úr beiðnum um gjaldfrjálsa þjónustu. Að þessu marki vinna aðilar í þjónustuneti CLAAS úr persónuupplýsingum þínum með aðskilinni ábyrgð. Í undantekningartilvikum miðlar CLAAS Service and Parts eða framleiðslufyrirtæki CLAAS upplýsingum einnig áfram til framleiðanda íhlutar, að því gefnu að það sé nauðsynlegt í framangreindum tilgangi og að viðkomandi skilyrði persónuverndarlaga séu uppfyllt í hverju tilviki fyrir sig. Ef þú eða aðili í þjónustuneti CLAAS eða framleiðslufyrirtækið eruð í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. |
3. Rafræn skjöl fyrir vinnuvélina |
CLAAS Service and Parts skjalfestir ástand vinnuvélarinnar þinnar með miðlægum hætti (m.a. útbúnað, uppsetta hluti, viðbætur, aðrar upplýsingar sem skylt er að skjalfesta). Um er að ræða grunnupplýsingar vinnuvélarinnar (t.d. framleiðandi, vöruflokkur, vöruhópur, gerð, útbúnaður, framleiðsludagur, stillingar, tæknilegt ár vinnuvélarinnar), auðkenni vinnuvélar (t.d. verksmiðjunúmer, raðnúmer), þjónustu- og viðhaldsupplýsingar (t.d. tæknilegar breytingar á vegum framleiðanda). Í þessum tilgangi tengir CLAAS Service and Parts upplýsingarnar sem verða til hjá framleiðslufyrirtæki CLAAS við upplýsingar bæði úr afhendingarskjölunum (sbr. lið B.I.) sem og upplýsingar sem CLAAS-þjónustuaðilinn færir inn í miðlæga kerfið. Þetta er nauðsynlegt til þess að CLAASþjónustuaðilinn þinn geti greint og lagfært bilanir og gefið þér nauðsynlegt mat vegna þessa (samningsefndir eða gerð samnings að þinni beiðni) sem og til þess að tryggja að þú hafir frjálst val um CLAAS-þjónustuaðila. Lagagrundvöllur er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar, c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar (vöruöryggi) eða fliður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að geta boðið upp á kerfi með upplýsingum fyrir tiltekið ökutæki sem bjóða upp á frjálst val á CLAAS-þjónustuaðila. Ef aðili í þjónustuneti CLAAS er staðsettur í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. |
4. Skráning og skjalfesting þjónustu- og verkstæðisverka, uppgjör og sending uppgjörsskjala vegna pantana viðskiptavina |
Fyrirtæki innan CLAAS-samsteypunnar láta CLAASþjónustuaðilum í té verkfæri sem þeir geta notað til að skrá þjónustubeiðnir og skipuleggja, skjalfesta og gera upp vinnu tæknimanna. Þau starfrækja þessi verkfæri sem vinnsluaðilar CLAAS-þjónustuaðilans. Þetta felur í sér vinnslu á eftirfarandi upplýsingum: persónulegum auðkenningarupplýsingum, rekstrarupplýsingum, samskiptaupplýsingum, upplýsingum um innihald samskipta, samnings- og verkupplýsingum, upplýsingum varðandi áætlanagerð og stjórnun, tæknilegum skráningarupplýsingum, faglegum skráningarupplýsingum, vélarupplýsingum (þ.m.t. staðsetningu), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum. Lagagrundvöllur er b-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar svo fremi sem vinnslan er nauðsynleg vegna samningsgerðar eða til þess að inna þjónustu- eða verkstæðisverk af hendi. Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að tryggja sem besta þjónustu við viðskiptavini. |
IV. Vörueftirlit, vöruöryggi, frum- og framþróun á vörum og þjónustu, gæðastjórnun með |
1. Umfang vinnslu persónuupplýsinga |
CLAAS Service and Parts vinnur með persónuupplýsingar þínar með tilteknum CLAASframleiðslufélögum (CLAAS KGaA mbH, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi, infoclaas@claas.com; CLAAS Tractor S.A.S., 31 Avenue Pierre Piffault, 72027 Le Mans, Frakklandi, sími +33 24 38 65 35 3; CLAAS Selbstfahrende Erntemaschinen GmbH, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi, infoclaas@claas.com; CLAAS Hungária Kft., Törökszentmiklós, Kombájn u. 1, 5200 Ungverjalandi, sími +36 56 59 76 00; CLAAS Saulgau GmbH, Zeppelinstraße 2, 88348 Bad Saulgau, Þýskalandi, sími +49 7581 / 203-0; Usines CLAAS France S.A.S., 6 Rte de Thionville, 57140 Woippy, Frakklandi, sími +33 3 87 34 41 00; CLAAS Industrietechnik GmbH, Halberstädter Str. 15-19, 33106 Paderborn, Þýskalandi, +49 (52 51 / 70 50; CLAAS E-Systems GmbH, Sommerkämpen 11, 49201 Dissen am Teutoburger Wald, Þýskalandi, info@claas-e-systems.com; CLAAS Material Handling GmbH, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi, infoclaas@claas.com (sem hér eftir nefnast í sameiningu „CLAAS“); liðir A.II. til A.VII. gilda með samsvarandi hætti; hafa má samband við persónuverndarfulltrúa CLAAS KGaA mbH, CLAAS Selbstfahrende Erntemaschinen GmbH, CLAAS Saulgau GmbH, CLAAS Industrietechnik GmbH og CLAAS E-Systems GmbH sem og persónuverndarfulltrúa samsteypunnar fyrir önnur framangreind fyrirtæki á CLAAS KGaA mbH, z.Hd. des Datenschutzbeauftragten bzw. Konzerndatenschutzbeauftragten, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi, group.dpo@claas.com , einnig vegna vörueftirlits og vöruöryggis, frum- og framþróunar á vörum og þjónustu, gæðastjórnunar með fyrirbyggjandi viðhaldi sem og vegna efnda á öðrum lagaskyldum, t.d. til að sýna fram á að útblástursgildi séu innan þeirra marka sem lög mæla fyrir um (sem hér eftir er vísað til í sameiningu sem „vörueftirlit og endurbætur á vörum“). Í þessum tilgangi vinna ofangreind fyrirtæki innan CLAAS samsteypunnar úr grunnupplýsingum vinnuvélarinnar (t.d. um framleiðanda, vörutegund, gerð), rekstrarupplýsingum vinnuvélar (t.d. um vinnslustöðu vara og kerfisíhluta á borð við heildarþunga, áfyllingarstöðu, þrýsting í hjólbörðum, villukóða), afkastatölum vinnuvélar (t.d. snúningshraða vélar, eldsneytisnotkun), upplýsingum um aksturslag ökumanns (t.d. um hröðun, hreyfingar stýris), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum (t.d. um vinnu sem hefur farið fram, slit á hlutum og íhlutum), upplýsingum um hreyfingar vinnuvélar (t.d. um stöðu og stefnu), notkunar- og flutningsupplýsingar (t.d. um stöðu SIM-korts og stöðu tengingar) sem og tæknilegum skráningarupplýsingum (t.d. tímastimplum), stillingum vinnuvélar, upplýsingum um umhverfi vinnuvélarinnar (t.d. um veðurskilyrði, tegund ávaxtar). Hér er um að ræða (i) upplýsingar sem fyrirtækin safna við greiningu og lagfæringu á bilunum og úr endurgjöf frá viðskiptavinum, m.a. upplýsingar sem er aflað með greiningarkerfum (sbr. lið B.III.1.); (ii) upplýsingar úr úrvinnslu gjaldfrjálsrar þjónustu, ábyrgðarmála eða sambærilegra beiðna um yfirtöku kostnaðar (sbr. lið B.III.2); (iii) upplýsingar úr rafrænum skjölum fyrir ökutæki; (iv) upplýsingar sem CLAAS Service and Parts safnar frá þér með réttmætum hætti með fjarskiptabúnaði á vinnuvélinni (t.d. þegar þú notar þjónustu CLAAS Remote Service eða CLAAS TELEMATICS) og miðlar áfram til annarra (framangreindra) framleiðslufyrirtækja CLAAS í þágu vörueftirlits og endurbóta á vörum; (v) upplýsingar sem verða til hjá CLAAS við gagnagreiningu (t.d. „big data“-greiningu úr samsetningu framangreindra upplýsinga); (vi) upplýsingar um umhverfi vinnuvélarinnar (einkum um hitastig umhverfis) sem við fáum einnig úr opinberum heimildum (t.d. veðurfréttum). Í ofangreindum tilgangi vinnur CLAAS greiningu og mat á upplýsingunum. Frekari vinnsla upplýsinganna fer fram með nafnlausum hætti (t.d. með því að steypa saman) eða – ef það er nauðsynlegt í ofangreindum tilgangi – með gerviauðkenni. Lagagrundvöllur er c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar ef vinnsla persónuupplýsinganna er nauðsynleg til að uppfylla lagalegar skyldur okkar í tengslum við vörueftirlit og vöruöryggi. F-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er jafnframt lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem er nauðsynleg vegna vörueftirlits og endurbóta á vörum. Ef við óskum eftir samþykki þínu er lagagrundvöllur vinnslunnar a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ásamt 1. mgr. 25. gr.TTDSG). |
2. Ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga |
Að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga af hálfu CLAAS Service and Parts og framleiðslufyrirtækja CLAAS (CLAAS KGaA mbH, CLAAS Tractor S.A.S., CLAAS Selbstfahrende Erntemaschinen GmbH, CLAAS Hungária Kft., CLAAS Saulgau GmbH, Usines CLAAS France S.A.S., CLAAS Industrietechnik GmbH, CLAAS E-Systems GmbH, CLAAS Material Handling GmbH) (sem hér eftir nefnast í sameiningu „CLAAS“) í ofangreindum tilgangi bera fyrirtækin samkvæmt persónuverndarlögum sameiginlega ábyrgð á að gera upplýsingarnar aðgengilegar í gagnagrunni. Frekari greining af hálfu ofangreindra fyrirtækja í þágu endurbóta á vörum og vörueftirlits fer ávallt fram á ábyrgð hvers fyrirtækis fyrir sig í skilningi 26. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Vinni ofangreind framleiðslufyrirtæki CLAAS saman að endurbótum á vörum er um sameiginlega ábyrgð að ræða. Efndir á upplýsingaskyldu. Að því er varðar framangreind ferli eða ferlisþætti ber CLAAS Service and Parts ábyrgð á að uppfylla skyldu sameiginlegra ábyrgðaraðila til að veita upplýsingar samkvæmt 13. og 14. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Sameiginlegir ábyrgðaraðilar aðstoða hver annan við að sinna upplýsingaskyldu að því marki sem nauðsynlegt er. Réttindum skráðra einstaklinga framfylgt. CLAAS KGaA mbH ber ábyrgð á að framfylgja öðrum réttindum skráðra einstaklinga til upplýsinga, leiðréttingar, eyðingar, að flytja eigin gögn, að leggja fram andmæli og að takmarka vinnslu og fær við það aðstoð hjá öðrum sameiginlegum ábyrgðaraðilum að því marki sem nauðsynlegt er. CLAAS KGaA mbH, Mühlenwinkel 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi gegnir því hlutverki sameiginlegs tengiliðar sem skráður einstaklingur getur snúið sér til (t.d. með því að senda tölvupóst á privacy@claas.com). Skal þá einnig gefa upp vélarnúmerið svo hægt sé að tengja málið við vinnuvélina. Óháð því hvernig sameiginlegir ábyrgðaraðilar hafa samið um að skipta með sér hlutverkum og ábyrgð, einkum að því er varðar réttindi skráðra einstaklinga, geta skráðir einstaklingar samkvæmt 3. mgr. 26. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar nýtt rétt sinn hjá og gagnvart öllum sameiginlegum ábyrgðaraðilum. |
3. Frekari sending tæknilegra upplýsinga frá landbúnaðarvélum |
CLAAS safnar tæknilegum upplýsingum úr vinnuvélinni í ofangreindum tilgangi jafnvel þótt þú notir ekki gagnatengda þjónustu á borð við CLAAS Remote Service eða CLAAS TELEMATICS á grundvelli samnings (sbr. lið B.II.). CLAAS safnar eftirfarandi upplýsingum: grunnupplýsingum vinnuvélarinnar (t.d. um framleiðanda, gerð, tegund vinnuvélar, vélarnúmer), rekstrarupplýsingum vinnuvélar (t.d. um vinnslustöðu vinnuvélar og kerfisíhluta, s.s. um villur og bilanir, hugbúnaðarstöðu, kennitölur skynjara), afkastatölum vinnuvélar (t.d. eldsneytisnotkun, snúningshraða vélar, hraða), upplýsingum um hreyfingar vinnuvélar (t.d. um stöðu, stefnu, akstursleið og aksturshraða), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum (t.d. um slit á hlutum og íhlutum, greiningarupplýsingum), upplýsingum um umhverfi vinnuvélar (t.d. um hitastig umhverfis, raka í uppskeru, gæði korns, tegund ávaxtar), notkunar- og flutningsupplýsingum (t.d. um stöðu SIM-korts og stöðu tengingar). Svo fremi sem við óskum eftir samþykki þínu er lagagrundvöllur fyrir vinnslunni a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar (e.t.v. ásamt 1. mgr. 25. gr.TTDSG). Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í hagsmunum af vörueftirliti og vöruöryggi, frum- og framþróun á vörum og þjónustu sem og gæðastjórnun. Að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga í skilningi þessa liðs B.IV.3. teljast CLAAS Service and Parts og framleiðslufyrirtæki CLAAS vera sameiginlegir ábyrgðaraðilar í skilningi 26. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Sameiginlega ábyrgðin nær yfir eftirfarandi skref við að (i) safna upplýsingum og (ii) veita aðgengi að upplýsingunum í gagnagrunni. Frekari greining af hálfu ofangreindra fyrirtækja í þágu endurbóta á vörum og vörueftirlits fer ávallt fram á ábyrgð hvers fyrirtækis fyrir sig í skilningi 26. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Vinni ofangreind framleiðslufyrirtæki CLAAS saman að endurbótum á vörum er um sameiginlega ábyrgð að ræða. CLAAS KGaA mbH ber ábyrgð á að sameiginlegir ábyrgðaraðilar efni upplýsingaskyldur og framfylgi réttindum skráðra einstaklinga. Liður B.IV.2. gildir með samsvarandi hætti. |
4. Vinnsla persónuupplýsinga í tengslum við íhluti frá þriðju framleiðendum |
Í einstaka tilvikum miðlar viðkomandi framleiðslufyrirtæki CLAAS upplýsingum um íhluti í vinnuvélinni þinni einnig áfram til birgja fyrir íhluti (t.d. söluaðila hreyfla) í ofangreindum tilgangi. Lagagrundvöllur er c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar ef vinnsla persónuupplýsinganna er nauðsynleg til að uppfylla lagalegar skyldur í tengslum við vörueftirlit og vöruöryggi (þ.m.t. lagalegar skyldur til að sýna fram á að útblástursgildi séu innan þeirra marka sem lög mæla fyrir um). F-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er jafnframt lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem er nauðsynleg vegna gæðastjórnunar, úrvinnslu ábyrgðarmála og beiðna um gjaldfrjálsa þjónustu sem og til að uppfylla lagaskyldur þriðja framleiðanda (t.d. að sýna fram á að útblástursgildi séu innan lögboðinna marka). Lögmætu hagsmunirnir felast í ofangreindum tilgangi. Að því marki fer miðlun upplýsinga í ofangreindum tilgangi fram án persónutengingar, ef þess er kostur, en að öðru leyti í samræmi við grundvallarregluna um lágmörkun upplýsinga einskorðað við þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar í framangreindum tilgangi, t.d. með gerviauðkenni (t.d. þegar tilgreint er raðnúmer íhlutar, vélarnúmer, staðsetningarupplýsingar). Ef þú eða aðili í þjónustuneti CLAAS eruð í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. CLAAS Service and Parts ber ekki ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í skilningi þessa liðar B.IV.4. |
5. Samskipti þegar um tæknilega aðgerð á vinnuvélinni er að ræða |
Ef þörf krefur notar CLAAS Service and Parts persónuupplýsingar þínar einnig til að framkvæma tæknilega aðgerð á vinnuvélinni (þegar hættulegt ástand búnaðar gefur tilefni til að ætla að lífi, limum eða eignum stafi hætta af vinnuvélinni eða því hvernig hún er notuð sem og til að leggja fram gögn sem leysa undan ábyrgð). CLAAS Service and Parts fær þessar upplýsingar um vinnuvélina þína frá framleiðslufyrirtæki CLAAS og vinnur úr persónuupplýsingum þínum til þess að CLAASumboðið, CLAAS-innflutningsaðilinn eða sölufyrirtæki CLAAS á þínu svæði geti haft samband. Til þess eru notaðar vélarupplýsingar (m.a. auðkenni vinnuvélar á borð við raðnúmer, grunnupplýsingar vinnuvélar á borð við vörutegund og stillingar), upplýsingar varðandi áætlanagerð og stjórnun (t.d. viðkomandi verkstæði), þjónustu- og viðhaldsupplýsingar (t.d. um vinnu sem fara skal fram) sem og e.t.v. rekstrarupplýsingar (t.d. heiti viðkomandi fyrirtækis) og samskiptaupplýsingar. CLAAS Service and Parts notar hér að hluta til einnig upplýsingar sem það fær frá CLAAS-framleiðslufyrirtækinu. Í undantekningartilvikum getur einnig verið að CLAAS Service and Parts hafi samband. Auk þess vinnur CLAAS Service and Parts úr persónuupplýsingum sem CLAAS-þjónustuaðilinn eða CLAASinnflutningsaðilinn sendir til okkar eða viðkomandi sölufyrirtækis CLAAS til að sýna fram á hvaða vinna hefur farið fram og gera hana upp. Lagagrundvöllur er c-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar til að uppfylla lagalegar skyldur okkar í tengslum við vörueftirlit og vöruöryggi. F-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar er lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem er jafnframt nauðsynleg til að standa vörð um lögmæta hagsmuni CLAAS Service and Parts og viðkomandi framleiðslufyrirtæki CLAAS af vöruöryggi og öryggi á sviði upplýsingatækni. Ef þú eða aðili í þjónustuneti CLAAS eruð í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. |
V. Greiningar til að bæta viðskiptaferli (einkum ferli við sölu og þjónustu), stuðningur við sölufyrirtæki á hverjum stað (t.d. í tengslum við beina markaðssetningu) |
Svo fremi sem það er nauðsynlegt til að bæta sölu- og þjónustuferli okkar miðlar viðkomandi framleiðslufyrirtæki CLAAS eða CLAAS KGaA mbH greiningum sem fyrirtækin gera í tengslum við vinnslu samkvæmt lið B.I.-IV. til sölufyrirtækja innan CLAASsamsteypunnar á staðnum í því skyni að bæta viðskiptaferli. Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætir hagsmunir fyrirtækjanna innan CLAAS-samsteypunnar felast í því að bæta viðskiptaferli. Ef þess er kostur er upplýsingunum miðlað áfram án persónutengingar (t.d. með því að steypa saman greiningum), en að öðrum kosti eru notuð gerviauðkenni. Gerðar eru sérstakar verndarráðstafanir til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinganna fari þannig fram að aðgangur að upplýsingunum sé takmarkaður við þá sem þurfa að fá aðgang að þeim í þeim tilgangi sem liggur að baki vinnslunni. CLAAS Service and Parts eða sölufyrirtækið á staðnum vinna einnig með persónuupplýsingar þínar við greiningar á viðskiptaferlum (t.d. uppgjör söluþóknana; til að aðstoða CLAAS-umboð með viðskiptaferli þeirra; til að fullgilda viðskiptalíkön (einnig með tengingu við markaðssvæði); vegna áhættu- og kostnaðarstýringar; vegna gæðastjórnunar; til að hafa umsjón með sölulaunum). Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að bæta viðskiptaferli okkar. Í þessum tilgangi er unnið úr grunnupplýsingum vinnuvélarinnar (t.d. um framleiðanda, vörutegund, gerð), rekstrarupplýsingum vinnuvélar (t.d. um vinnslustöðu vara og kerfisíhluta á borð við heildarþunga, áfyllingarstöðu, þrýsting í hjólbörðum, villukóða), afkastatölum vinnuvélar (t.d. snúningshraða vélar, eldsneytisnotkun), upplýsingum um aksturslag ökumanns (t.d. um hröðun, hreyfingar stýris), þjónustu- og viðhaldsupplýsingum (t.d. um vinnu sem hefur farið fram, slit á hlutum og íhlutum), upplýsingum um hreyfingar vinnuvélar (t.d. um stöðu og stefnu), notkunar- og flutningsupplýsingum (t.d. um stöðu SIM-korts og stöðu tengingar) sem og tæknilegum skráningarupplýsingum (t.d. tímastimplum) og upplýsingum sem verða til hjá framleiðslufyrirtæki CLAAS eða CLAAS KGaA mbH við gagnagreiningu (t.d. „big data“-greiningu úr samsetningu upplýsinganna sem tilgreindar eru í B.IV.) (t.d. um afköst vöru af tiltekinni tegund við dæmigerð notkunarskilyrði á tilteknu svæði). Markaðssetning. Viðkomandi framleiðslufyrirtæki CLAAS eða CLAAS KGaA mbH kann að nota upplýsingarnar til að aðstoða CLAAS-umboð, CLAASinnflutningsaðila og sölufyrirtæki CLAAS á staðnum við framkvæmd herferða með beinni markaðssetningu og ber hvert fyrirtækjanna fyrir sig þá aðskilda ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinganna. Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á samþykki þínu er a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að öðru leyti er lagagrundvöllur f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætu hagsmunirnir felast í því að markaðssetja vörur okkar og þjónustu. Ef þú ert viðskiptavinur með aðsetur utan Evrópusambandsins er upplýsingum að þessu marki miðlað áfram til sölufyrirtækis CLAAS á þínu svæði eða CLAAS-innflutningsaðilans. Liður A.V. á við hvað þetta varðar. |
VI. Upplýsingar sendar til að birta þær í CLAAS connect |
CLAAS Service and Parts sendir gagnamengi þitt samkvæmt lið B.II. eða hluta þess einnig til rekstraraðila CLAAS connect (www.connect.claas.com) ef þú óskar eftir því við rekstraraðilann að upplýsingar þínar í Remote Service eða TELEMATICS séu birtar í CLAAS connect. Rekstraraðili CLAAS connect ber aðskilda ábyrgð vegna birtingar upplýsinga þinna í CLAAS connect. Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Lögmætir hagsmunir CLAAS Service and Parts felast í því að veita aðgang að upplýsingunum sem þú óskaðir eftir hjá rekstraraðila CLAAS connect. |
VII. Auglýsingar, markaðssetning (að meðtöldum markaðsrannsóknum og skoðanakönnunum, ánægjumælingum) |
CLAAS Service and Parts notar persónuupplýsingar þínar í þágu kynningar- og markaðsstarfs, þ.m.t. auglýsinga (t.d. markaðsrannsókna, skoðanakannana og ánægjumælinga), fyrir allt sem snýr að vörum og þjónustu frá CLAAS (www.claas.com). Haft er samband bréfleiðis, nema að þú hafir andmælt notkun persónuupplýsinga þinna í þessum tilgangi (t.d. með því að senda tölvupóst á netfangið privacy@claas.com eða með samskiptaupplýsingunum í lið A.I.). Lagagrundvöllur er f-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Að öðru leyti er haft samband með þeim samskiptaleiðum sem tilgreindar eru í yfirlýsingunni um samþykki (t.d. með tölvupósti fyrir fréttabréf o.fl., símleiðis / með spjallforriti). Lagagrundvöllur er a-liður 1. málsl. 1. mgr. 6. gr.almennu persónuverndarreglugerðarinnar. CLAAS Service and Parts safnar persónuupplýsingum þínum sem koma fram í afhendingaryfirlýsingunni einnig fyrir hönd CLAAS KGaA mbH, CLAAS Global Sales GmbH (póstfang er í báðum tilvikum Mühlenwinke 1, 33428 Harsewinkel, Þýskalandi, hafa má samband við persónuverndarfulltrúa fyrrnefndu fyrirtækjanna með því að senda póst á ofangreint heimilisfang eða með því að senda tölvupóst á netfangið group.dpo@claas.com), sölufyrirtækis CLAAS á þínum stað (www.claas-gruppe.com > The Group > Locations; þú getur hvenær sem er nálgast upplýsingar um sölufyrirtæki CLAAS á þínum stað þér að kostnaðarlausu með samskiptaupplýsingunum í lið A.I. eða óskað eftir samskiptaupplýsingum með því að senda tölvupóst á netfangið infoclaas@claas.com) eða innflutningsaðila CLAAS á þínum stað (innflutningsaðili CLAAS á þínum stað (www.claasgruppe. com > The Group > Locations) / innflutningsaðili (www.claas.com > CLAAS global); þú getur hvenær sem er nálgast upplýsingar um innflutningsaðila CLAAS á þínum stað þér að kostnaðarlausu með samskiptaupplýsingunum í lið A.I. eða óskað eftir samskiptaupplýsingum með því að senda tölvupóst á netfangið infoclaas@claas.com) eða valda CLAAS-þjónustuaðilans þíns (samkvæmt afhendingaryfirlýsingu) og miðlar þeim áfram til þeirra í þágu kynningar- og markaðsstarfs, þ.m.t. auglýsinga (t.d. með sendingu auglýsinga með samskiptaleiðum að þínu vali, markaðsrannsóknum og skoðanakönnunum, ánægjumælingum). Hvert fyrirtæki fyrir sig ber þá aðskilda ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinganna. Í þessum tilgangi vinna aðilarnir úr eftirfarandi upplýsingum: persónulegum auðkenningarupplýsingum (t.d. fornafni og eftirnafni, heimilisfangi, CLAAS ID, titli og starfslýsingu, fæðingardegi), samskiptaupplýsingum (símanúmeri, netfangi), rekstrarupplýsingum (heiti fyrirtækis, heimilisfangi, áherslu í rekstri, stærð fyrirtækis, flotaupplýsingum, númeri viðskiptavinar, sögu fyrirtækis (t.d. dagsetningu kaupa eða fyrstu notkunar vinnuvélarinnar), veltuupplýsingum, upplýsingum um virkni (t.d. um heimsóknir til viðskiptavinar, vörukynningar), upplýsingum og greiningum á áhugasviði og hegðun notenda (t.d. áhuga á vörum, áhuga viðskiptavinar, upplýsingum um keyptar eða leigðar vörur og notaða þjónustu, sögu viðskiptavinar, veltuupplýsingum, upplýsingum um opnun, smelli á og höfnun fréttabréfa), upplýsingum um vinnuvél (grunnupplýsingum vinnuvélar, afkastatölum vinnuvélar og rekstrarupplýsingum vinnuvélar, þ.e. vélarnúmeri og tengdum atriðum á borð við framleiðanda, vöruflokk, vöruhóp, vöruflokkun, gerð, tegund vinnuvélar, útbúnað, stillingar, fjölda unninna hektara, fjölda unninna bagga, farnar ferðir, vinnustundir) Hér er um að ræða upplýsingar sem aðilarnir afla með samþykki þínu fyrir markaðssetningu eða í þágu beinnar markaðssetningar á afhendingaryfirlýsingu eða upplýsingar sem þú gefur upp í tengslum við viðskiptasamband við einhvern aðilanna eða upplýsingar sem stafa úr notkun á vörum eða þjónustu ofangreindra aðila. Aðilarnir nota upplýsingarnar sem aflað er með þessum hætti til að ákvarða hvaða upplýsingaefni og tilboð eru líklegust til að vekja áhuga hjá þér, í því skyni að senda þér auglýsingar. Markmiðið er að sníða auglýsingar okkar að áhugasviði þínu og laga tilboð okkar sem best að þínum þörfum. Ef þú vilt ekki að persónuupplýsingar þínar verði notaðar lengur í auglýsingaskyni getur þú hvenær sem er séð til þess t.d. með því að draga til baka yfirlýsingu þína um samþykki eða með því að senda andmæli gegn beinni markaðssetningu á netfangið privacy@claas.com eða með ofangreindum samskiptaupplýsingum. Ef sölufyrirtæki CLAAS á þínum stað, innflutningsaðili CLAAS og/eða CLAAS-söluaðilinn þinn er í þriðja landi utan ESB/EES á liður A.V. einnig við. |
C. Uppruni upplýsinganna |
I. Upplýsingar sem fengnar eru frá þér með afhendingaryfirlýsingunni |
II. Persónuupplýsingar sem CLAAS Service and Parts fær frá þér |
CLAAS Service and Parts vinnur úr persónuupplýsingum sem CLAAS Service and Parts fær frá þér þegar viðskiptunum er komið á og gengið er frá samningi, þegar þú kaupir eða notar vörur og þjónustu frá okkur eða hefur samband við okkur og veitir samþykki þitt fyrir sendingu auglýsinga. |
III. Persónuupplýsingar sem CLAAS Service and Parts fær frá þriðju aðilum |
CLAAS Service and Parts vinnur jafnframt úr persónuupplýsingum sem CLAAS Service and Parts fær með leyfilegum hætti frá þriðju aðilum í þeim tilgangi sem tilgreindur er í þessum upplýsingum um persónuvernd. Þessir þriðju aðilar eru fyrirtæki innan CLAAS-samsteypunnar, CLAAS-umboðið þitt eða CLAAS-innflutningsaðilinn þinn eða framleiðslufyrirtæki CLAAS, en í undantekningartilvikum er einnig um að ræða persónuupplýsingar sem CLAAS Service and Parts fær frá framleiðanda íhluta í sambandi við lögboðna skyldu hans til að sinna vörueftirliti og tryggja öryggi framleiðsluafurða sinna. |
D. Skylda til að láta persónuupplýsingar þínar í té |
Ekki er fyrir hendi laga- eða samningsskylda til að láta persónuupplýsingar í té. Svo fremi sem vinnsla persónuupplýsinga þinna er nauðsynleg vegna samningssambands okkar, til þess að við getum efnt samningsskyldur okkar gagnvart þér, mun CLAAS Service and Parts yfirleitt þurfa að hafna gerð samningsins eða ekki lengur geta efnt fyrirliggjandi samning að umtalsverðu leyti og e.t.v. þurft að rifta honum. |
Hjá CLAAS KGaA mbH vinnum við stöðugt að því að gera vörur okkar enn betri samfara tæknilegri framþróun. Af þessum sökum verðum við að áskilja okkur rétt til frávika frá myndum og lýsingum í þessu riti, án þess að það skapi rétt til breytinga á þeim vélum sem þegar hafa verið afhentar. Upplýsingar um tækni, mál og þyngdir eru ekki bindandi. Engin ábyrgð er tekin á hugsanlegum villum. Rit þetta má ekki afrita eða þýða, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis CLAAS KGaA mbH. Öll réttindi áskilin. CLAAS KGaA mbH 33416 HARSEWINKEL Germany |